top of page
Anchor 4

Göngugreining

Það gæti borgað sig að koma í göngugreiningu ef þú ert með stoðkerfisvandamál eða vilt reyna að koma í veg fyrir þau.  Vandamál sem lausnir í tengslum við göngugreiningu geta hjálpað til við að leysa eru t.d.:

 

  • Þreytuverkir og pirringur í fótum

  • Verkir í hnjám

  • Sársauki eða eymsli í hælum (hælspori, plantar fascitis ofl.)

  • Beinhimnubólga

  • Óþægindi eða verkir í baki og/eða mjöðmum

  • Verkir í tábergi og/eða iljum

  • Hásinavandamál

  • Óþægindi í ökklum

  • Þreytu- og álagsverkir hjá börnum og unglingum

 

 

  • Tölvuþrýstimælingaplata sem innbyggð er í göngu-/hlaupabretti nemur álagsdreifingu á fætur

  • Fullkomið tölvukerfi sýnir tölulegar upplýsingar um gönguferlið og stöðu fóta

  • Stöðugleiki og jafnvægi eru metin

  • Mælt hvernig álagið kemur á fæturna

  • Skoðað hvort tábergið er sigið (tábergssig)

  • Staðan á iljaboga skoðuð (ilsig, holfótur)

  • Videoupptaka sýnir stöðu á fótum og hnjám við göngu og upplysingar vistast í gagnagrunni

  • Ganglimir eru lengdarmældir

  • Staða á mjaðmagrind er skoðuð

  • Viðskiptavinur getur fengið útprentun með nákvæmum upplýsingum um göngulag og niðurstöður göngugreiningar.

Flexor notast við algjörlega nýja tækni við göngugreiningu.  Notað er göngu-/hlaupabretti með innbyggðum þrýstinemum sem tengjast fullkomnu tölvukerfi sem aftur skilar nákvæmum upplýsingum um göngulag.

bottom of page