Göngugreining:
- Ásmundur Arnarsson
- Jun 10, 2014
- 1 min read
Það gæti borgað sig að koma í göngugreiningu ef þú ert með stoðkerfisvandamál eða vilt reyna að koma í veg fyrir þau. Vandamál sem lausnir í tengslum við göngugreiningu geta hjálpað til við að leysa eru t.d.:
Þreytuverkir og pirringur í fótum
Verkir í hnjám
Sársauki eða eymsli í hælum (hælspori, plantar fascitis ofl.)
Beinhimnubólga
Óþægindi eða verkir í baki og/eða mjöðmum
Verkir í tábergi og/eða iljum
Hásinavandamál
Óþægindi í ökklum
Þreytu- og álagsverkir hjá börnum og unglingum

Comments